Tóney - tónskóli og pilates, miðstöð fyrir tónlist og hreyfingu

Velkomin á heimasíðu Tóneyjar

Fjórða starfsár Tóneyjar 2010 - 2011, hófs 6. september 2010, skáning á vorönn 2011 er hafin.
Upplýsingar og verðhugmyndir fyrir annir og námskeið er að finna á Annir / veturinn 2010-11
Boðið er upp á fjölbreytt hljóðfæranám; píanó, gítar, bassa, trommur, strengjahljóðfæari, blásturshljóðfæri, harmoniku auk sekkjapípu, tinflautu, mandólu, didgeridu og annara framandi hljóðfæra. Einnig fjölbreytt námskeið í tónsmíðum, fræðum og tölvutækni.


Kennsla fer ýmist fram í litlum hópum eða í einkatímum. Lengd námskeiða er misjöfn; einkatímar og hópnámskeið í hljóðfæraleik spanna að jafnaði 12 vikur, ein kennslustund í viku en tölvutækni námskeið 4 vikur, 3 klukkutímar í senn.


Skráning stendur nú yfir fyrir vorönn 2011. Áhugasamir geta fyllt út skráningarform, fengið nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , eða í síma 551 3888. Tóney er aðili að Frístundakorti Reykjavíkurborgar.

Ábyrgðarmaður Tóneyjar er Guðni Franzson

 

Tónlist

Á Tóney er unnið að tónlist á breiðum grunni, í formi námskeiða, fyrirlestra, hóp- og einkakennslu. Áhersla er lögð á hljóðfæraleik, söng og almenna tónlistarþjálfun, auk tækni- og fræðipælinga, tónsmiðju og margvíslegra verkefna tengdum tónlist. Starfið veturinn 2009-10 verður mótað í tveimur önnum; haust og vor en einnig lögð sérstök áhersla á styttri námskeið og fyrirlestra. Klassík-, jazz-, heims- og tilraunatónlist eiga samastað á Tóney en gert er ráð fyrir þátttakendum á öllum aldri.
 

Samstarf við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla

Á Tóney eru þróuð námskeið sem fara fram í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum í samstarfi við umsjónakennara á hverjum stað. Þetta eru námskeið sem koma inn í tónmenntakennslu hvers skóla, sjálfstæðar einingar tvinnaðar í hefðbundið nám og unnar af fagfólki. Tóney mun í vetur koma að tónmenntakennslu í nokkrum grunnskólum Reykjavíkur, þ.m Sæmundarskóla, Fellaskóla og Langholtsskóla, þar sem við sjáum um tónmenntir og tónlistarþjálfun en einnig Hvassaleitisskóla og Álftamýrarskóla þar sem Tóney kemur að hljóðfærakennslu og tónleikahaldi innan skólanna.
Tóney hefur haldið leikskólanámskeið t.d. á Vesturborg, á liðnu vori, því lauk með skemmtilegum tónleikum og útgáfu geisladisks, leiðbeinandi var Margrét Sigurðardóttir söngkona.
Einnig stóð Tóney að eins dags tónsmiðju í Menntaskólanum við Sund í febrúar 2009, þátttakendur voru nokkur hundruð nemendur skólans en meðal leiðbeinenda voru Áki Ásgeirsson, Áskell Másson og Ragnhildur Gísladóttir tónskáld.
 

Farkennsla

Farkennsla er verkefni þar sem fagfólk frá Tóney heimsækir skóla á landsbyggðinni og aðstoðar við kennslu og uppbyggingu námsefnis.
 

Tækni/fræði

Sérstök rækt er lögð við tækni og fræði tónlistar, boðið uppá námskeið í mikilvægum tölvuforritum, s.s. Sibelius, Pro Tools, Live, Reason, Native Instruments ofl. Færustu leiðbeinendur hér heima og erlendis, fræðimenn, tónskáld og tæknimenn, halda námskeið. Sérstaklega verður boðið uppá námskeið fyrir starfandi tónlistarfólk og tónlistarkennara en einnig lögð áhersla á unglinga og þá sem vilja kynna sér nýjustu tækni.
 

Samstarf við tónlistarskóla og aðra sérskóla

Tóney vinnur í nánu samstarfi við tónlistarskólana á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni við að auka möguleika í tónsköpun, hljóðfæraleik og tónlist almennt. Námskeið eru ýmist haldin í viðkomandi skólum eða á Tóney, Síðumúla 8, Reykjavík. Við höfum m.a tekið að okkur sérverkefni fyrir Tónskóla Sigursveins, Tónlistarskóla Fíh, Tónlistarskóla Seltjarnarness og fl.
 

Pilates

Lára Stefánsdóttir og Ástrós Gunnarsdóttir, dansarar og danshöfundar hafa sérmenntað sig í líkamsþjálfunarkerfi Pilates. Þetta er sérlega góð líkamsrækt sem nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar. Hún fer fram ýmist hópum (8 - 12 manna) eða í einkatímum. Hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands sem stunduðu þjálfun í fyrra hafa borið einróma lof á ræktina.

Skráning í Pilates er opin allt árið. Áhugasamir geta fyllt út skráningarform fyrir Ekta - Pilates, fengið nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , eða í síma 551 3888.
 

Frístundakortið

Tóney er aðili að frístundakorti Reykjavíkurborgar
Borði


web by: Hallgrímur Arnarson